Næsta laugardag, 10. Mars, verða Riffildagar haldnir í Ellingsen en Lax-á mun kynna hreindýraveiði í Grænlandi og nýtt gæsasvæði sitt í Gunnarsholti á Rangárvöllum.
Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri í samvinnu við verslunina Vesturröst verður haldinn laugardaginn 3. og sunnudaginn 4. mars 2012 frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri.
Það er Opið hús hjá skemmtinefnd Stangaveiðifélags Reykjavíkur á morgun, föstudaginn 2. mars. Kvöldið fer fram í salarkynnum félagsins að Háaleitisbraut 68.
Stangaveiði í Varmá og Þorleifslæk mun hefjast þann 1. apríl næstkomandi. Öll veiðileyfi frá og með opnunardegi verða aðgengileg á vefsölu SVFR sem opnar fyrstu viku marsmánaðar. Veiðileyfin á vatnasvæðið hafa verið í sölu hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur mörg undanfarin ár.
Mánudagskvöldið 27 febrúar kl 20 standa SVAK, Flugan og Flúðir fyrir kynningu á Hofsá í Skagafirði og Ólafsfjarðará. Ármann H Guðmundsson og Arnar Þór Gunnarsson sjá um kynninguna á Hofsá og Guðmundur Ármann Sigurjónsson mun kynna Ólafsfjarðarána.